Ég var ein heim um helgina, það var bara ágætt þá get ég eldað það sem ég vil og haft sjónvarpið botni alla nóttina Gerði reyndar ekki mikið, það var samt alveg fáránlega gott veður þannig að ég er búin að vera úti að skokka Það er allt morandi í dýrum hérna núna! Er búin að sjá fullt af snákum og stundum pota í þá með priki, þori ekki alveg að taka þá upp sko, og fullt af froskum líka ég sá einn risastóran frosk með annan lítin frosk á bakinu, það var alveg mega spes En áðan þá var ég að skokka í sakleysi mínu og ég sé alltíeinu tvo stóra hirti að slást aðeins ofar í brekkunni Ég elska dádýr það er uppáhaldsdýrið mitt og ég var ekki einiusinni að spá í því hvað þeir voru ógeðlsega nálægt mér, ég bara stóð og horfði á þá. Svo alltíeinu vinnur annar hjörturinn og hin flýr beint í áttina til mín og hin á eftir honum. Ég flúði ekki einusinni ég veit ekkert hvað ég var að spá ég hugsaði bara "sjitt, þetta verður sárt" en svo þegar hann var hálfum metra frá mér sveigði hann inni skó og þeir héldu áfram að slást einhverstaðar... Alveg pottþétt ævintýri vikunar
Svo áðan komst ég að því að ég átti að mæta í skólann klukkan fjögur, á sunnudegi!!! Ég var ekki sátt en fór samt og gaf tveim strákum far. Ég var bara að koma heim, við áttum reyndar að vera lengur en ég var að farast úr hungri þannig að ég fór fyrr
Í öðrum fréttum þá fékk ég mér deviantart síðu, ég veit ekki afhverju það er bara sjúklega töff síða ([link])







--
Always in the mood for a Yaoi RP :3 <3 [link] [url=[link] from Valenth[/url]
Mikið Sakn !
<3
--
"From The Moment I Saw Him I Fell.." <3
Previous PageNext Page